Dagur íslenskra tungu var haldinn hátíðlegur á mánudaginn 16. nóvember. Haldið er upp á dag íslenskrar tungu árlega á fæðingardegi Jónasar Hallgrímssonar.
Nemendur elstu deilda æfðu fallega íslenska vísu og fóru með fyrir viðstadda. Stóðu þau sig með prýði og var þetta frábær hugrekkisæfing fyrir þau.
Vísan:
Græn eru laufin og grasið sem grær,
glóðin er rauð og eldurinn skær.
Fífill og sóley eru fagurgul að sjá,
fjöllin og vötnin og loftin eru blá.
Hvítur er svanur sem syndir á tjörn,
svartur er hann krummi og öll hans börn.
