Dagana 23.–25. október fór fram verklegt námskeið fyrir verðandi slökkviliðsmenn á Dalvík. Námskeiðið var haldið á vegum Brunamálaskólans og sóttu það þátttakendur frá slökkviliðum víðs vegar af Norðurlandi.
Upphaflega stóð til að halda námskeiðið á Siglufirði en þar sem það reyndist ekki mögulegt var það haldið á Dalvík. Tveir leiðbeinendur frá Brunavörnum Árnessýslu sáu um kennsluna ásamt því sem fjölmargir liðsmenn Slökkviliðs Dalvíkur komu að framkvæmd námskeiðsins og aðstoðuðu við verklegar æfingar.
Þátttakendur höfðu áður lokið bóklegum hluta námsins og fengu nú tækifæri til að nýta þekkingu sína við raunhæfar aðstæður. Á námskeiðinu var meðal annars farið yfir vatnsöflun, notkun handslökkvitækja og eldvarnateppa, kalda reykköfun með áherslu á leit og björgun, auk þrautabrautar í reyk. Þá fór einnig fram heit reykköfun í yfirtendrunargámi og útkallsæfing þar sem þátttakendur þurftu að nýta þá færni sem þeir höfðu tileinkað sér.
Þátttakendur komu frá Slökkviliði Dalvíkur, Slökkviliði Fjallabyggðar, Brunavörnum Skagafjarðar og slökkviliðinu á Hvammstanga.
Þrír þátttakendur frá Slökkviliði Dalvíkur luku námskeiðinu með sóma, þau Athena, Íris og Unnar. Ari Trausti hefur haldið utan um námið fyrir hönd Slökkviliðs Dalvíkur og fylgt undirbúningi og námsframvindu þátttakenda eftir.
Að loknu þessu námi, ásamt tilskildum reykköfunartímum, læknisskoðun og þrekprófi, uppfylla þátttakendur skilyrði til að teljast fullgildir reykkafarar.
Námskeiðið er mikilvægur liður í þjálfun og uppbyggingu slökkviliðanna og stuðlar að aukinni færni, öryggi og viðbragðsgetu við krefjandi aðstæður.
Dalvíkurbyggð óskar Athenu, Írisi og Unnari innilega til hamingju með árangurinn og þakkar öllum þeim sem komu að skipulagningu og framkvæmd námskeiðsins fyrir þeirra mikilvæga framlag.
Hér má sjá myndir frá æfingunni teknar af Athenu Ragúels Landsman og Davíð Þór Friðjónssyni.














