Dalvíkurbyggð óskar eftir tilboðum í gatnagerð í Birkihólum, sem er ný 70 metra löng botnlangagata út úr Skógarhólum ofan Lynghóla. Verkið felst í brottflutningi á jarðvegi og jarðvegsskiptum auk lagningar á veitulögnum og tenginga við núverandi kerfi. Einnig felst í verkinu malbikun á götu og uppsetning á götulýsingu. Markmið verksins er að gera lóðir við götuna byggingarhæfar.
Helstu magntölur:
- Upprif á malbiki - 100m2
- Gröftur - 5.700m3
- Fylling - 4.000m3
- Malbik - 1.100m2
- Fráveitulagnir - 200m
- Brunnar – 4 stk.
- Ný niðurföll – 3 stk.
- Kaldavatnslagnir – 150 m
- Hitaveitulagnir - 120m
- Ljósastólpar – 7 stk.
Verkinu skal að fullu lokið 1. nóvember 2026 með fyrirvara um að leyfismál tefji ekki fyrir verkáætlun verktaka. Unnið er að frágangi leyfismála.
Útboðsgögn verða send þeim sem vilja eftir að beiðni þess efnis berst á dalvikurbyggd@dalvikurbyggd.is
Fyrirspurnartíma lýkur 20. júlí 2026 og rennur svarfrestur fyrirspurna út 22. júlí 2026.
Tilboðum skal skila fyrir kl. 14:00 mánudaginn 27. júlí 2026 á netfangið dalvikurbyggd@dalvikurbyggd.is eða á pappír á skrifstofur Dalvíkurbyggðar í Ráðhúsinu á Dalvík.
