Fjölskylduráð Dalvíkurbyggðar auglýsir eftir umsóknum í Afreks- og styrktarsjóð.
Markmið sjóðsins er meðal annars að styðja við og veita viðurkenningu fyrir góðan árangur og öflugt íþrótta-, félags- og æskulýðsstarf í sveitarfélaginu. Einnig er sjóðnum ætlað að veita félögum viðurkenningu fyrir gott fordæmi á sviði almenningsíþrótta.
Umsóknir skulu berast rafrænt í gegnum þjónustugátt Dalvíkurbyggðar undir „Umsóknir“.
Umsóknarfrestur er til og með fimmtudeginum 26. nóvember 2026.
Umsækjendur eru hvattir til að kynna sér reglur sjóðsins áður en umsókn er send inn. Reglur Afreks- og styrktarsjóðs má nálgast hér.
Nánari upplýsingar veitir íþróttafulltrúi í netfanginu jonsi@dalvikurbyggd.is.