Á næstu dögum hefjast tvær umfangsmiklar framkvæmdir á vegum Dalvíkurbyggðar í suðurhluta Dalvíkur. Annars vegar verður ráðist í endurnýjun Böggvisbrautar frá Mímisvegi og suður úr og hins vegar gatnagerð við nýja íbúðagötu í Birkihólum, suður úr Skógarhólum og ofan Lynghóla.
Dalvíkurbyggð hefur samið við Steypustöðina Dalvík ehf. um framkvæmd beggja verkefna. Framkvæmdirnar munu hafa áhrif á umferð og nærumhverfi á svæðinu næstu vikur og eru íbúar beðnir um að sýna aðgát og fylgja merkingum á framkvæmdasvæðum.
Endurnýjun Böggvisbrautar
Framkvæmdir við Böggvisbraut hefjast 19. ágúst og er áætlað að þeim ljúki 1. nóvember 2026.
Verkið felur meðal annars í sér að malbik verður fjarlægt og 30 cm jöfnunarlagi undir því skipt út. Fráveitulagnir verða endurnýjaðar og fráveitukerfið tvöfaldað. Að því loknu verður gatan malbikuð að nýju og gangstétt austan megin endurnýjuð.
Gert er ráð fyrir að framkvæmdin verði unnin í áföngum þannig að aðeins lítill hluti götunnar verði lokaður hverju sinni. Byrjað verður syðst og unnið að miðju og síðan nyrst og að miðju.
Á framkvæmdartímanum má búast við tímabundnum lokunum, umferð vinnuvéla og þungaflutningum, auk hávaða og ryks. Einnig geta orðið tímabundnar raskanir á rekstri fráveitukerfisins.
Gatnagerð við Birkihóla
Framkvæmdir við nýja íbúðagötu í Birkihólum hefjast um 1. september og er áætlað að þeim ljúki 30. nóvember 2026.
Verkið felur meðal annars í sér brottflutning jarðvegs, jarðvegsskipti, lagningu og tengingu veitukerfa, uppsetningu götulýsingar og malbikun.
Vegna framkvæmdanna má búast við töluverðum jarðvegsflutningum og umferð vinnuvéla um svæðið, auk hávaða og ryks.
Áhrif á íbúa og umferð
Búast má við vinnu á framkvæmdasvæðunum milli kl. 08:00 og 18:00 á virkum dögum og mögulega einhverja laugardaga.
Götulokanir og hjáleiðir verða merktar sérstaklega. Íbúar á svæðinu geta nýtt aðkomu um Böggvisstaðaafleggjara úr suðri meðan á framkvæmdum stendur.
Íbúar eru beðnir um að leggja ekki ökutækjum á merktum vinnusvæðum eða þar sem þau geta hindrað aðgengi tækja og vinnuvéla.
Foreldrar og forráðamenn eru jafnframt hvattir til að ræða við börn sín um þær hættur sem geta skapast í nágrenni við framkvæmdasvæði. Svæðin verða afgirt eftir því sem við á, en mikilvægt er að sýna sérstaka aðgát í nágrenni þeirra.
Dalvíkurbyggð biðst velvirðingar á þeim óþægindum sem framkvæmdirnar kunna að valda og þakkar íbúum fyrir þolinmæði og gott samstarf meðan á framkvæmdum stendur.
Nánari upplýsingar veita:
Helga Íris Ingólfsdóttir
Deildarstjóri eigna- og framkvæmdadeildar Dalvíkurbyggðar
Sími: 853-0220
Netfang: helga@dalvikurbyggd.is
Rúnar Helgi Óskarsson
Verkstjóri veitna Dalvíkurbyggðar
Sími: 892-3891
Netfang: veitur@dalvikurbyggd.is
Ingvar Óskarsson
Forsvarsmaður verktaka
Sími: 898-7307
Netfang: ssd@ssd.is
