Starfsdagur Dalvíkurbyggðar
Fimmtudaginn 17. september kom starfsfólk Dalvíkurbyggðar saman í Menningarhúsinu Bergi vegna árlegs starfsdags starfsfólks. Fjölbreytt dagskrá endurspeglaði gildi sveitarfélagsins – virðingu, jákvæðni og metnað – auk áherslunnar á að starfsfólk sveitarfélagsins myndi eina heild. Meðal viðfangsefna voru netöryggi, nýtt byggðarmerki sveitarfélagsins, framtíðarstefna og áherslur í mannauðsmálum og innleiðing launa- og mannauðskerfisins Kjarna. Þá kynnti starfsfólk Dalvíkurskóla námsferðir sínar til Spánar og Hollands á liðnum árum. Dagskránni lauk með afar fróðlegum og bráðskemmtilegum fyrirlestri Pálmars Ragnarssonar um jákvæð samskipti á vinnustöðum.

Í tilefni af nýju byggðarmerki sveitarfélagsins fékk allt starfsfólk minnisbók og lyklaband að gjöf. Gulur litur varð fyrir valinu til að vekja jafnframt athygli á verkefninu „Er allt í gulu?“ og Gulum september. Á meðfylgjandi mynd má sjá starfsfólk Dalvíkurbyggðar ásamt fyrirlesaranum Pálmari Ragnarssyni. Skipuleggjendur þakka starfsfólki fyrir góða þátttöku og ánægjulega samveru.
