Fara í efni
17.08.2026

Söfnun fyrir nýtt töfrateppi á Skíðasvæði Dalvíkur

Deildu

Söfnun fyrir nýtt töfrateppi á Skíðasvæði Dalvíkur

Unnið er að uppbyggingu nýrrar aðstöðu á Skíðasvæði Dalvíkur með uppsetningu á 70 metra löngu yfirbyggðu töfrateppi. Um er að ræða færiband fyrir skíðafólk sem ætlað er að bæta aðstöðu fyrir yngstu iðkendurna, byrjendur og fjölskyldur sem sækja skíðasvæðið heim.

Verkefnið er að frumkvæði Jökuls Bergmann, sem í tilefni af 50 ára afmæli sínu hefur ákveðið að gefa Skíðafélagi Dalvíkur töfrateppið og jafnframt efna til söfnunar til stuðnings uppbyggingu þess og yfirbyggingar.

Dalvíkurbyggð hefur ákveðið að styðja verkefnið með 10 milljóna króna framlagi enda er það talið mikilvægt skref í áframhaldandi uppbyggingu Skíðasvæðis Dalvíkur. Bætt aðstaða fyrir börn og byrjendur getur aukið aðgengi að skíðaíþróttinni, stutt við barna- og unglingastarf Skíðafélags Dalvíkur og jafnframt styrkt skíðasvæðið sem útivistar- og fjölskyldusvæði. 
Fjölmargir aðilar hafa þegar lagt verkefninu lið, meðal annars með hönnun, verkfræðiþjónustu, flutningum og framkvæmdum. Töfrateppið er þegar komið til landsins og gert er ráð fyrir að vinna við uppsetningu hefjist snemma í haust.
Verkefnið er umfangsmikið og kostnaður við heildarframkvæmdina nemur nokkrum tugum milljóna króna. 

Í tilefni afmælisins hefur Jökull því hvatt einstaklinga, fyrirtæki og aðra velunnara til að leggja verkefninu lið með frjálsum framlögum.
Dalvíkurbyggð tekur undir þá hvatningu og hvetur íbúa og fyrirtæki sem sjá sér fært að styðja verkefnið til þátttöku. Með sameiginlegu átaki skapast tækifæri til að bæta enn frekar aðstöðu til skíðaiðkunar í sveitarfélaginu og skapa góðar aðstæður fyrir komandi kynslóðir.

Söfnunarreikningur verkefnisins:
Reikningur: 0177-15-200238
Bergmenn ehf.
Kt. 430657-0119