Fara í efni
18.08.2026

Samningar undirritaðir um vetrarþjónustu til ársins 2029

Deildu

Dalvíkurbyggð hefur gengið frá samningum um vetrarþjónustu í sveitarfélaginu í kjölfar útboðs sem fram fór nýverið.

Útboðið var tvískipt. Annars vegar var boðin út vetrarþjónusta á Dalvík og hins vegar vetrarþjónusta á Árskógssandi og Hauganesi. Þjónustan felur meðal annars í sér snjómokstur og hálkuvarnir.

Steypustöðin Dalvík ehf. átti lægsta tilboð í báða verkhluta og hefur nú verið samið við fyrirtækið um framkvæmd þjónustunnar. Samningarnir gilda til ársins 2029.

Við undirritun samninganna voru Ingvar og Eyrún fyrir hönd samningsaðila og var þar með formlega gengið frá þjónustunni fyrir komandi vetur og næstu ár.

Með samningunum er lögð áhersla á örugga og markvissa vetrarþjónustu á Dalvík, Árskógssandi og Hauganesi, með það að markmiði að tryggja sem bestar samgöngur og aðstæður fyrir íbúa og vegfarendur yfir vetrartímann.