Fara í efni
28.08.2026

Rúnar Smári syndir fyrir Íslands hönd á Evrópumóti Special Olympics

Deildu

Dalvíkurbyggð á sannarlega ástæðu til að vera stolt þessa dagana. Í september heldur Rúnar Smári Ásgeirsson til Möltu þar sem hann mun keppa fyrir Íslands hönd á Evrópumóti Special Olympics í sundi, einu stærsta sundmóti sem samtökin hafa staðið fyrir í Evrópu.

Rúnar Smári er einn fjögurra íslenskra keppenda sem valdir hafa verið til þátttöku á mótinu, en þar munu um 400 sundmenn frá 40 þjóðum koma saman og etja kappi dagana 10.-14. september.
Sundið hefur verið stór hluti af lífi Rúnars frá unga aldri og hann hefur sýnt mikla elju og staðfestu í íþróttinni í gegnum árin. Hann æfir með Sundfélaginu Óðni á Akureyri og hefur lagt hart að sér til að ná þeim árangri sem nú hefur skilað honum sæti í íslenska landsliðshópnum. 

/cdn/media/20250914_1132251.jpg?v=1787912932

Fyrir Rúnar Smára er þátttakan einstakt tækifæri til að keppa á alþjóðlegum vettvangi og mikilvægt skref í að auka sýnileika fatlaðs afreksfólks í íþróttum, fyrir okkur hin er hún jafnframt áminning um hvað hægt er að ná langt með þrautseigju, gleði og jákvæðu hugarfari. Allir sem þekkja Rúnar vita að hann mætir alltaf með bros á vör og gefst aldrei upp þegar verkefnin verða krefjandi.

Það er því mikill heiður fyrir Dalvíkurbyggð að eiga fulltrúa á þessu stóra móti. Rúnar Smári verður ekki aðeins fulltrúi Íslands heldur einnig stoltur fulltrúi samfélagsins okkar.
Við óskum Rúnari Smára innilega til hamingju með þetta glæsilega afrek og sendum honum okkar bestu kveðjur fyrir komandi keppni á Möltu. 

Við munum fylgjast spennt með og hvetja hann áfram þegar hann syndir fyrir Íslands hönd í september.

Áfram Rúnar Smári!