Fara í efni
27.10.2026

Opið fyrir umsóknir í Styrktarsjóð TÁT

Deildu

Tónlistarskólinn á Tröllaskaga vekur athygli á Styrktarsjóði TÁT og þeim möguleikum sem sjóðurinn býður ungu og efnilegu tónlistarfólki.

Markmið sjóðsins er að styrkja unga nemendur og tónlistarmenn sem hafa staðið sig vel í námi við TÁT og í sinni heimabyggð og vilja afla sér frekari menntunar á sviði tónlistar.

Sækja má um styrk til áframhaldandi náms í öðrum sveitarfélögum, námskeiða, masterklassa, tónleikahalds og annarra verkefna sem tengjast tónlist á Tröllaskaga, að uppfylltum skilyrðum sjóðsins.

Frekari upplýsingar og umsókn má finna á heimasíðu Tónlistarskólans á Tröllaskaga undir „Styrktarsjóður TÁT“.