Ný og glæsileg sauna hefur verið tekin í notkun í Sundlaug Dalvíkur og bætir þar með enn einni góðri aðstöðu við fyrir sundlaugargesti.
Saunan rúmar um 6–8 manns í einu og er búin öflugum saunaofni. Þar er einnig sjálfvirkt vatnskerfi sem gerir gestum kleift að úða vatni yfir heita steinana með því að ýta á takka og auka þannig gufuna og rakann í rýminu.
Við staðsetningu saununnar var sérstaklega horft til þess að gestir gætu notið útsýnisins til suðurs inn Svarfaðardal. Óhætt er að segja að það hafi tekist vel og ætti útsýnið að setja skemmtilegan svip á upplifunina.
14 ára aldurstakmark er í saununa. Þar er mjög hár hiti og sjóðandi heitir steinar í ofninum sem alls ekki má snerta. Mikilvægt er að gestir fylgi þeim öryggisreglum sem gilda um notkun saununnar.
Saunan er hugsuð sem staður fyrir ró, slökun og notalega stund. Við biðjum því gesti um að taka tillit hver til annars, virða kyrrðina og njóta.
Við hvetjum sundlaugargesti til að prófa nýju saununa og njóta bæði hitans og hins fallega útsýnis inn Svarfaðardal.
