Fara í efni
12.10.2026

Lokun Böggvisbrautar vegna malbikunar - Virðið lokanir

Deildu

Á morgun, þriðjudag 13. október verður Böggvisbraut malbikuð, frá gatnamótum við Mímisveg og suður að Skógarhólum. Þetta er það svæði þar sem framkvæmdir hafa staðið yfir undanfarnar vikur. 
Mjög mikilvægt er að vegfarendur virði þær lokanir sem settar hafa verið upp þar sem gatan er nú tilbúin undir malbikun. Að öðrum kosti gæti verkið tafist.

Hjáleið er sem fyrr frá Brekkuselsvegi og um tímabundin veg ofan Lynghóla inn í Hólahverfið og er það eina hjáleiðin. 

Reiknað er með að lokunum verði aflétt á miðvikudag og umferð um hverfið orðin eðlileg.