Vegna framkvæmda við Böggvisbraut, þar sem unnið er að viðhaldi á brunnum og lögnum, verður göngustígurinn frá Dalbraut niður að sundlaug tímabundið að einhverju leyti lokaður og því ekki alltaf greiðfær fyrir gangandi vegfarendur.
Á vinnusvæðinu eru djúpir skurðir og stórvirkar vinnuvélar við störf. Þótt svæðið sé merkt og afgirt viljum við sérstaklega biðja foreldra og forráðamenn að minna börn á að halda sig frá framkvæmdasvæðinu. Slík svæði geta virst spennandi til leikja, en þar geta leynst verulegar hættur.
Við biðjum íbúa og aðra vegfarendur um að sýna aðgát á svæðinu og virða lokanir og merkingar á meðan framkvæmdum stendur.
Við þökkum fyrir skilning og samvinnu meðan á framkvæmdunum stendur.
