Vegagerðin vekur athygli á að tímabundnar lokanir og tafir verða á umferð um Múlagöng næstkomandi mánudags- og þriðjudagskvöld, 7. og 8. september, vegna framkvæmda við uppsetningu nýrra aksturshurða í gangnamunnum.
Frá kl. 19:00 til miðnættis báða dagana má búast við umferðartöfum en umferð verður hleypt í gegn eftir því sem aðstæður og framvinda verks leyfa.
Frá miðnætti til kl. 04:00 aðfaranætur 8. og 9. september verða göngin hins vegar lokuð allri umferð. Að lokinni lokun, frá kl. 04:00 og fram undir morgun, verður umferð á ný hleypt í gegn eftir því sem vinna leyfir þar til framkvæmdum lýkur.
Vegfarendur eru hvattir til að gera ráð fyrir töfum, skipuleggja ferðir sínar með hliðsjón af lokununum og sýna aðgát á framkvæmdasvæðinu.
Nánari upplýsingar um framkvæmdir og stöðu umferðar má finna á vef Vegagerðarinnar.
