Fara í efni
14.08.2026 Skipulagsmál

Hafnarsvæði Árskógssandi

Deildu

Skipulagslýsing fyrir nýtt deiliskipulag
Dalvíkurbyggð hefur hafið vinnu við gerð deiliskipulags fyrir hafnarsvæðið á Árskógssandi. 

Nú liggur fyrir skipulagslýsing þar sem fram kemur hvaða áherslur sveitarstjórn hefur við skipulagsvinnuna, upplýsingar um forsendur og fyrirliggjandi stefnu, fyrirhugað skipulagsferli og hvernig kynningu og samráði verður háttað. 

Lýsinguna má nálgast hér fyrir neðan og á Skipulagsgátt: www.skipulagsgatt.is undir máli nr. 953/2026. 

Íbúar og aðrir hagsmunaaðilar eru hvött til að kynna sér skipulagslýsinguna og senda inn ábendingar, annað hvort með tölvupósti á dalvikurbyggd@dalvikurbyggd.is, bréfleiðis til framkvæmdasviðs í Ráðhúsi Dalvíkur eða í gegnum Skipulagsgátt. 

Frestur til að senda inn ábendingar er til 31.ágúst nk. 

Skipulagsfulltrúi