Í morgun var Ólympíuhlaup Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands (ÍSÍ) formlega sett í Dalvíkurskóla. Með því hófst jafnframt landsátakið Göngum í skólann, sem hvetur börn og ungmenni til aukinnar hreyfingar og virks lífsstíls.
Starfsfólk fræðslu- og almenningsíþróttasviðs ÍSÍ hefur um árabil ferðast um landið og sett formlega af stað Ólympíuhlaupið og Göngum í skólann á hverju hausti. Að þessu sinni féll sá heiður í skaut Dalvíkurskóla að vera upphafsstaður verkefnisins.
Við setningarathöfnina bauð skólastjóri gesti og nemendur velkomna og fulltrúi ÍSÍ sagði frá verkefninu og afhenti skólanum búnað sem mun nýtast nemendum í leik og hreyfingu. Eyrún sveitarstjóri ávarpaði einnig samkomuna og hvatti nemendur til þátttöku og hreyfingar.
Að lokinni setningu tóku nemendur þátt í upphitun áður en hlaupið var ræst. Nemendum gafst kostur á að velja á milli 2,5 km, 5 km eða 10 km hlaups eftir eigin getu og áhuga. Þá vakti lukkudýrið Blossi mikla lukku meðal nemenda og skapaði skemmtilega stemningu á svæðinu.
Markmið Ólympíuhlaups ÍSÍ er að hvetja börn og ungmenni til reglulegrar hreyfingar og vekja athygli á mikilvægi heilbrigðs lífsstíls. Hlaupið er hluti af víðtæku forvarnar- og heilsueflingarstarfi ÍSÍ og hefur um árabil verið fastur liður í upphafi skólaárs víða um land.
Dalvíkurskóli þakkar ÍSÍ kærlega fyrir heimsóknina og óskar öllum þátttakendum til hamingju með glæsilega frammistöðu og skemmtilegan dag í anda hreyfingar, heilsu og samveru.






























