Veiðifélag Svarfaðardalsár hefur úthlutað Dalvíkurbyggð veiðileyfum í Svarfaðardalsá sumarið 2026.
Ákveðið hefur verið að auglýsa leyfin til umsóknar fyrir íbúa Dalvíkurbyggðar sem eru annars vegar 67 ára og eldri og hins vegar ungmenni 18 ára og yngri.
Alls eru 18 veiðidagar í boði og er hægt að sækja um daga. Hver umsækjandi fær að hámarki úthlutað einum degi. Ef umsóknir eru færri en 18 áskilur Dalvíkurbyggð sér rétt til þess að úthluta fleiri dögum á umsækjendur. Ef umsóknir eru fleiri en dagarnir sem í boði eru áskilur Dalvíkurbyggð sér rétt til að úthluta hálfum veiðidögum.

Umsóknarfrestur er til og með 1. júlí næstkomandi.
Sótt er um í gegnum þjónustugátt Dalvíkurbyggðar.
