Fara í efni
20.10.2026

Bleiki dagurinn í Dalvíkurbyggð

Deildu

21. október er bleiki dagurinn. Landsmenn eru hvattir til að klæðast bleiku, bera bleiku slaufuna og lýsa skammdegið upp með bleikum ljóma. Þannig er konum sem greinst hafa með krabbamein sýndur stuðningur og samstaða.

Í tilefni bleika dagsins á morgun ætlar starfsfólk Dalvíkurbyggðar að klæðast bleiku og hjálpast að við að lita daginn bleikan. Við hvetjum íbúa að taka þátt í bleika deginum, njóta saman og sýna samstöðu.