Fara í efni

Bókasafn: bókaverðir

Vilt þú taka þátt í að skapa öflugt og lifandi menningarstarf? 

Við leitum að metnaðarfullum og þjónustulunduðum einstaklingum til starfa bæði á Bókasafni Dalvíkurbyggðar og í Menningarhúsinu Berg.

Menningarhúsið Berg er lifandi menningarmiðstöð í hjarta Dalvíkur þar sem eru bókasafn, fjölnota salur og veitingarekstur. Þar fer fram fjölbreytt starfsemi, meðal annars tónleikar, sýningar, ráðstefnur, fundir, námskeið, fyrirlestrar og fjölskylduviðburðir. 

Tvö störf í 40% stöðuhlutfalli bókavarðar. Möguleiki er á að skoða önnur starfshlutföll eftir samkomulagi.

Störfin eru unnið á opnunartíma bókasafnsins (11:00–17:00). Starfsmenn vinna fjóra virka daga í viku á rúllandi vöktum sem skiptast vikulega milli fyrri og seinni vakta. Umsækjendur þurfa að geta unnið til kl.17:00 á daginn og einstaka laugardagsvaktir frá kl. 13:00–16:00 sem eru til viðbótar við starfshlutfall. Möguleiki er að tengja saman starf á bókasafni við auglýstar stöður í Menningarhúsinu Bergi. 

Næsti yfirmaður er forstöðumaður Safna og Menningarhússins Bergs. 

Helstu verkefni á bókasafni eru

  • Þjónusta og ráðgjöf við gesti
  • Útlán, skil og frágangur safnkosts
  • Umsjón með samfélagsmiðlum og miðlun upplýsinga á vef. 
  • Skráning, flokkun og uppsetning bóka og annars safnkosts
  • Aðstoð við skipulagningu og framkvæmd viðburða, kynninga og fræðslustarfs. 
  • Kynning á þjónustu bókasafnsins og þátttaka í þróun og eflingu starfseminnar
  • Önnur tilfallandi verkefni sem tengjast daglegum rekstri bókasafnsins. 

Við leitum eftir einstaklingum sem hafa:

  • Góða kunnáttu og færni á samfélagsmiðlum og eiga auðvelt með að tileinka sér ný forrit. 
  • Búa yfir góðri færni í mannlegum samskiptum og hafa ríka þjónustulund. 
  • Hafa góða skipulagsfærni, vinna sjálfstætt, lausnamiðað og eiga auðvelt með samstarf. 
  • Hafa góða færni í íslensku í máli og riti. 
  • Hafa góða færni í ensku í máli og riti. 
  • Reynsla af bókasafnsstörfum er kostur en ekki skilyrði. 

Umsóknarfrestur er til 24.8.2026

Laun og starfskjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélag.

Sótt er um starfið á umsóknarvef Dalvíkurbyggðar. Með umsókn skal fylgja afrit af ferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar, rökstuðningur fyrir hæfni í starfið, stutt persónuleg kynning ásamt nöfnum umsagnaraðila. Við ráðningu eru jafnréttissjónarmið jafngild öðrum málefnalegum sjónarmiðum og hvetjum við áhugasama að sækja um óháð kyni og uppruna. Dalvíkurbyggð áskilur sér rétt til að hafna öllum umsóknum.

Frekari upplýsingar um starfið veitir forstöðumaður safna og Menningarhússins Bergs Dominique Sigrúnardóttir dominique@dalvikurbyggd.is 

Upplýsingar um laun og starfskjör veitir launa- og mannauðsfulltrúi Dalvíkurbyggðar launafulltrui@dalvikurbyggd.is