Jianna Rut 2 ára

Jianna Rut 2 ára

Jianna Rut varð 2 ára þann 29. mars, við héldum upp á afmælið hennar í leikskólanum í dag í tilefni dagsins. Hún málaði fallega kórónu og við sungum fyrir hana afmælissönginn. Við blésum saman á kertin tvö og hjálpuðumst að við að bjóða ávexti úr ávaxtakörfunni góðu. Við óskum Jianna Rut og fjölskyldu hennar innilega til hamingju með daginn.