Vetrarstarfið að hefjast á bóka- og skjalasafninu

Vetrarstarfið er nú að komast í gang á bóka- og skjalasafninu. Opnunartími safnsins er kl. 10:00-17:00 alla virka daga og á laugardögum kl. 13:00 - 16:00.

Morguntímarnir þ.e. frá 10:00 - 12:00 eru sérstaklega hugsaðir fyrir skipulagt starf og stundaskráin í vetur verður sem hér segir:

Mánudagur          Þriðjudagur            Miðvikudagur        Fimmtudagur           Föstudagur              

Leikskólanemendur

sögustund o.fl.

Tölvukennsla -Upplýsingar gefur Laufey -

Nýtt verkefni

Unnið með gamlar ljósmyndir - allir velkomnir

Grunnskólanemendur.

Verkefni í upplýsinga-tækni og/eða lestri

Ljóðavefurinn - Allt áhugafólk velkomið - Upplýsingar á skjalasafninu

Nýtt verkefni

kl. 16:00. Sögustund - nánar auglýst hverju sinni

Stefnt er að því að allt starfið verði komið í gang í fyrstu viku október. Nánar auglýst á heimasíðunni - facebook og eða með götuauglýsingum. Fyrsti hádegisfyrirlesturinn verður 3. október.