Vetrarstarfið að hefjast

Nú er að raðast inn dagskrá bóka- og skjalasafnsins í vetur. Morgunstundirnar nýtast sérstaklega vel fyrir heimsóknir skólanemenda á bókasafnið og hefjast þær heimsóknir þann 15. september.

Að öðru leyti hefjum við vetrarstarfið sem hér segir:

  • 5. september -   kl. 10 - 12    Vísnasafnið Haraldur á skjalasafninu. Allt áhugafólk velkomið.
  • 10. september - kl. 10 - 12    Ljósmyndahópur.  Nýtt fólk velkomið í hópinn.
  • 18. september - kl. 16:15      Sögustund á pólsku  - Jolanta Piotrowska hefur umsjón.