Verðlaunasamkeppni um slagorð fyrir bókasöfn

Kynningarnefnd bókasafna efnir til samkeppni um slagorð til að nota í kynningarátaki fyrir bókasöfn.Slagorðið þarf að eiga við allar tegundir bókasafna, hvort sem um er að ræða almenningsbókasöfn, skólabókasöfn eða sérfræðisöfn. Því er ætlað að koma jákvæðum skilaboðum á framfæri um bókasöfn og þarf að vera stutt, grípandi og gott að muna.
Frestur til að skila inn hugmyndum er til 20. mars 2008. Upplýsing, félag bókasafns- og upplýsingafræða veitir 100.000 króna verðlaun fyrir besta slagorðið.
Verðlaunin verða veitt á degi bókarinnar, þann 23. apríl.
Sendið hugmyndir í tölvupósti á bokasafn@bokasafn.is
eða merkt "verðlaunasamkeppni" á:Bæjarbókasafn Ölfuss, Hafnarbergi 1,
815 Þorlákshöfn
Nánari upplýsingar á www.bokasafn.is
Með von um frjóar og góðar hugmyndir,
Kynningarnefnd bókasafna,
Barbara Guðnadóttir, Bæjarbókasafni Ölfuss
Hólmkell Hreinsson, Amtsbókasafninu á Akureyri
Hrafnhildur Þorgeirsdóttir, Upplýsingadeild Orkustofnunar
Kristín Ósk Hlynsdóttir, Bókasafni Ríkisútvarpsins
Marta Hildur Richter, Bókasafni Mosfellsbæjar
Þóra Gylfadóttir, Bókasafns- og upplýsingaþjónustu Háskólans í Reykjavík