Upplýsingamiðstöðin opnuð á bókasafninu

Upplýsingamiðstöðin opnuð á bókasafninu

Þann 18. maí var upplýsingamiðstöð fyrir ferðamenn opnuð í húsnæði bókasafnsins. Upplýsingamiðstöðin verður opin frá kl. 8 - 18 alla virka daga og kl. 13 - 17 á laugardögum.  Það eru starfsmenn bókasafnsins sem sinna þjónustunni fyrir hádegi en Valgerður Stefánsdóttir ferðamálafræðingur sér að öðru leyti um starfsemi miðstöðvarinnar.