Sumarstarfsmaður óskast

Í sumar vantar okkur starfsmann í 100% starf á tímabilinu júní - ágúst. Við leitum að einstaklingi sem þarf að vera orðinn 18 ára. Að vera með góða menntun er æskilegt, en enn betra er að hafa góða þjónustulund og að vera fær um að spjalla við fólk á öllum aldri og af mörgum þjóðernum. Góð tölvukunnátta er skilyrði og að geta sinnt verkefnum bæði á bóka- og skjalasafni sem og á upplýsingamiðstöð fyrir ferðamenn. Daglegur vinnutími er frá 8 - 16 eða 9 - 17.  Hugsanlega þarf viðkomandi að vinna á 3 - 4 laugardaga frá kl. 13 - 16.  Allar frekari upplýsingar gefur Laufey Eiríksdóttir í síma 868-8798 eða í tölvupósti laufey@dalvikurbyggd.is