Sumarstarfsmaður á bókasafninu

Sumarstarfsmaður á bókasafninu

Jolanta Piotrowska er nýr starfsmaður á bókasafninu til næstu 6 mánaða. Jolanta talar pólsku, ensku og íslensku en við biðjum viðskiptavini bókasafnsins að muna að tala skýrt og rólega þegar hún er við afgreiðslu á útlánaborðinu. Jolanta mun sinna öllum hefðbundnum störfum á safninu s.s. tiltekt, frágangi á safngögnum og útlánum en auk þess mun hún verða með sögustundir fyrir börn af pólskum uppruna og sú fyrsta verður þann 30. maí kl. 16:15. Við bjóðum bæði börn og foreldra innilega velkomin. Fyrsta sögustundin verður sérstaklega ætluð yngri börnum þ.e. 0 - 9 ára.