Nýr opnunartími bókasafnsins

1. júní sl. var opnunartíma bókasafnins breytt. Nú er opið alla virka daga frá 14.00 til 17.00 og til 18.00 á fimmtudögum. Áður var bara opið tvo daga yfir sumarið og til 19.00 á fimmtudögum.  Þessi breyting hefur komið vel út og útlán aukist til mikilla muna yfir sumarmánuðina.  Mun þessi opnunartími gilda þar til Bókasafnið flytur í nýtt húsnæði á næsta ári.  Hvetjum fólk til að koma á Bókasafnið og skoða úrval nýrra bóka, sem koma jafnt og þétt á safnið.