Nýjar bækur

Jólabókaflóðið hefur náð til Bókasafnis.  Flestar vinsælustu bækurnar, sem út eru komnar eru annað hvort komnar eða eru að koma í Bókasfnið.  Mikið magn af nýjum bókum eru núna inni og eins og sagt er: Fyrstur kemur fyrstu fær.  Viljum við því hvetja fólk til að koma og ná sér í nýju bækurnar sem allir fjölmiðlar eru að tala um.

Einnig minnum við á bókaupplestur sem verður á Sogni 5. des. n.k. kl. 20.30.  Þar munu sveitungar lesa upp úr nýjum og óútkomnum bókum.  Komið og eigið notalegt kvöld með kertaljósum og upplestri.