Ný aðföng á bókasafnið

Ný aðföng á bókasafnið

Það streyma sífellt inn nýjar bækur, hljóðbækur, tímarit og DVD-diskar. Nýjustu hljóðbækurnar eru m.a. Hobbittinn, Eldar kvikna, Útkall, Dóttir húshjálparinnar, Biðin eftir Robert Capa, Þú afhjúpar mig og 4. og 5. bindi af Dalalífi Guðrúnar frá Lundi.

Á myndinni má sjá hvað er inni núna af nýjustu prentuðu bókunum. Um 40 nýjar bækur komu frá Póllandi í gær, aðallega barna- og unglingabækur. Þær bíða nú skráningar sem getur tekið einhvern tíma. Við bendum fólki á að skoða fésbókarsíðu safnsins til að fylgjast nánar með.