Myndlistasýning á bókasafninu

Á bókasafninu stendur nú yfir sýning á verkum leikskólabarna 4-5 ára, er heimsótt hafa safnið á haustmánðuðum.  Börnin komu frá Fagrahvammi, Krílakoti og Leikbæ.

Fólk er eindregið hvatt til að koma á safnið og skoða verk þessara upprennandi listamanna. Sýningin verður framundir jól og er því tilvalið að skella sér á bókasafnið og ná sér í nýjar bækur og blöð um leið og myndir barnanna eru skoðaðar.

Skoðið einnig myndir sem teknar voru í heimsóknunum á heimasíðu Dalvíkurbyggðar.