Lokað á bókasafninu föstudaginn 27. janúar frá hádegi

Lokað á bókasafninu föstudaginn 27. janúar frá hádegi

Föstudaginn 27. janúar nk. verður lokað á bókasafni Dalvíkurbyggðar frá kl. 12.30 - 17.00 vegna sameiginlegs starfsdags allra starfsmanna sveitafélagsins. Við biðjumst velvirðingar á öllum þeim vandræðum sem það kann að valda. 

Við minnum hins vegar á laugardagsopnun sem verður á sínum stað næsta laugardag sem og aðra laugardaga. Fyrir þá sem ekki vita þá er bókasafn Dalvíkurbyggðar opið alla laugardaga frá kl. 13.00 - 16.00. Það er tilvalið að nýta laugardagana á bókasafninu til lestrar og ánægju og gæða sér svo á gómsætum veigum á Basalt hér við hliðina á okkur. Allir geta síðan farið að láta sér hlakka til því í vetur stefnum við á að hafa fjölbreyttar samverustundir barna og fullorðinna u.þ.b. tvisvar í mánuði. Það verður auglýst betur síðar. 

Veriði öll ævinlega velkomin á bóka- og héraðsskjalasafnið

...nema eftir hádegið á föstudaginn 27. janúar, því þá verður lokað.