Leiklestur í Bergi

Í tilefni afhendingar leikritasafns Björgúlfs Lúðvíkssonar verður blásið til hátíðar í Bergi þriðjudaginn 23. mars kl. 18.00
Björgúlfur Lúðvíksson hefur ákveðið að gefa Bókasafni Dalvíkurbyggðar leikritasafn sitt, sem er eitt merkasta leikritasafn landsins.
Einnig afhendir hann við sama tækifæri nokkrar frumteikningar Mayers.  Lýsir þetta velvilja Björgúlfs í garð byggðarlagsins.
Við þetta tækifæri mun leikfélagið leiklesa upp úr vinsælum verkum úr safninu og fleira verður til skemmtunar.
Allir velkomnir.  Gaman væri ef fólk gæti komið og glaðst með okkur við þetta tækifæri.