Hádegisfyrirlestur 7. mars

Næsti hádegisfyrirlestur verður 7. mars í Bergi. Þá mun Júlíus Júlíusson flytja fyrirlestur sem hann nefnir, Stærstur, frægastur, flottastur?  Mun Júlíus fjalla um vangaveltur sínar tengdar því litla samfélagi sem við búum í og þá staðreynd hversu margir einstaklingar sem koma úr eða tengjast Dalvík, hafa skarað fram úr. Fyrirlesturinn hefst kl. 12:15 og eru allir velkomnir. Enginn aðgangseyrir.