Endurnýjað barnahorn

Föstudaginn 14. september kl. 15:00 verður barna- og unglingahornið okkar opnað formlega eftir endurnýjun og uppstokkun. Í leiðinni verða dregin út verðlaun fyrir þátttöku í lestrarstundum og bókaormi fyrra árs. Pabbar, mömmur, afar, ömmur, börn og unglingar sérstaklega boðin velkomin til að líta á nýja hornið og það sem þar má finna.