Bókaverðlaun barnanna

Bókaverðlaun barnanna

Börn á aldrinum 6-12 ára geta nú tekið þátt í að velja bestu barnabók liðins árs.  Hver lesandi má velja 3 bækur.  Úrslitin verða kynnt við hátíðlega athöfn 15. maí í aðalsafni Borgarbókasafns, Tryggvagötu 15.  Tvær bækur verða verðlaunaðar, ein frumsamin íslensk og önnur þýdd.  Hægt er að taka þátt í bókasafninu í Bergi eða á skólabókasafninu til 20. apríl.  Tveir heppnir þátttakendur verða dregnir út og hreppa bókagjafir.