Átak um söfnun skjala kvenfélaga um allt land

Nú stendur yfir sameiginlegt átak Kvenfélagasambands Íslands og Félags héraðskjalavarða á Íslandi um söfnun og varðveislu skjalasafna kvenfélaga á landinu og annarra félaga kvenna.

Kvenfélög á Íslandi eiga sér langa og merka sögu. Í dag eiga yfir 200 félög aðild að Kvenfélaga-sambandi Íslands en einnig eru mörg félög kvenna sem standa utan þess. Allt frá því fyrsta kvenfélagið var stofnað árið 1869 hafa þau unnið mikið starf landi og þjóð til velfarnaðar og heilla.

Mikilvægt er að starf og saga kvenfélaga falli ekki í gleymsku. Saga þeirra er varðveitt í skjölum sem oft eru geymd við misjafnar aðstæður og á ýmsum stöðum.

Hvatt er til þess að félögin afhendi þau skjöl sín sem ekki eru lengur í daglegri notkun til næsta héraðskjalasafns í því skyni að skjölin varðveitist á öruggum stað og verði aðgengileg áhugasömum um ókomin ár. Á skjalasöfnunum hafa einnig fleiri tækifæri til að skoða skjölin og styðjast við sögu félaganna.

Starfsmenn héraðsskjalasafna geta veitt kvenfélögum ráðgjöf og aðstoð við skráningu, frágang og afhendingu skjalanna Skjalasöfn samanstanda t.d. af fundagerðarbókum, bréfasöfnum, ljósmyndum, félagatölum, basarbókum, kynningarefni og e.t.v. fleiru. Gögn á rafrænu formi eins og félagatöl í Excel eða tölvupósta þarf að prenta út til afhendingar.