Áminning í tölvupósti

Í nýliðnum febrúarmánuði byrjaði bókasafnið að senda lánþegum áminningar um síðasta skiladag í tölvupósti.  Þetta á við um öll gögn sem eru með 30 daga útlán.  Tölvupósturinn er sendur út tvisvar í viku - á mánudögum og fimmtudögum.  Þetta verður vonandi til þæginda fyrir fólk, svo það lendi síður með útlánin í vanskilum. Viljum við því hvetja fólk til, sem ekki hefur gefið okkur upp netfangið sitt, að gera það og ekki síður senda okkur breytt netföng. Netföng má senda í netfangið sigurlaug@dalvikurbyggd.is   Svo er um að gera að skoða sínar síður á www.gegnir.is og sjá hvenær skiladagur er og framlengja ef með þarf.