Alþjóðlegi skjaladagurinn 9. júní

Í tilefni alþjóðlega skjaladagsins 9. júní verður skjalasafnið opið frá kl. 14:00-16:00. Kaffi á könnunni og gestum verður leiðbeint um safnið. Sérstök áhersla verður lögð á gömlu handskrifuðu sveitarblöðin sem eru ómetanlegur fjársjóður safnsins. Allir velkomnir.