Á sjó og landi - myndasýning

Á sjó og landi - myndasýning

Í næsta hádegisfyrirlestri 4. des. mun myndahópurinn á skjalasafninu sýna úrval mynda úr greiningarvinnu haustsins. Myndirnar sýna allar fólk við störf í sjávarútvegi bæði á sjó og í landi. Hópurinn mun segja frá myndunum og spjalla við gesti sem einnig mega gjarnan segja frá því sem þeir þekkja.  Sýningin hefst kl. 12:15. Allir eru velkomnir.