Fara í efni

Námsáætlun

Námsmatsáætlun Dalvíkurskóla 

Námsmatsáætlun yngra stigs (1. - 6. bekkur) 

Skólaárið skiptist í tvær annir. Námsmat fer fram í formi símats alla önnina í formi prófa, fjölbreyttra verkefna og kynninga. Unnið eftir hæfniviðmiðum aðalnámskrár grunnskóla. Hæfni nemenda skráð jafnt yfir önnina í mentor. Vitnisburður fer heim í lok annar með umsögnum um stöðu náms í öllum fögum ásamt almennri umsögn.

Haustfundir í upphafi skólaárs.

  • Farið er yfir áherslur vetrarins með foreldrum.

Læsi

  • Staðlað lesfimipróf frá MMS lagt fyrir í september, janúar og maí. 
  • Lesskimun lagt fyrir í október í 1. bekk. 
  • Stafsetningarskimun lögð fyrir í september – október í 1. bekk. 
  • Staðlað lesskilningspróf frá MMS (Orðarún) lagt fyrir í október og mars í 3. - 6. bekk. 
  • LOGOS lesgreiningarpróf lagt fyrir í nóvember – janúar í 3. og 5. bekk. 
  • GRP10 stafsetningarpróf lagt fyrir 5. bekk í janúar.

List og verkgreinar

  • Skila umsögn um hvern nemanda bæði á haust- og vorönn ásamt því að setja inn hæfni nemenda á mentor.

Íþróttir og sund

  • Skila umsögn um hvern nemanda bæði á haust- og vorönn ásamt því að setja inn hæfni nemenda á mentor. 
  • Ýmis próf

Foreldraviðtöl

  • Eru í lok september og lok janúar. Nemendur stjórna samtalinu við sína foreldra með aðstoð kennara. Nemendur ræða námið sitt og setja sér markmið, samskipti og hegðun. Fyrir viðtöl hafa nemendur undirbúið sig með kennara.

Námsmatsáætlun eldra stig (7. – 10. bekkur)

Skólaárið skiptist í tvær annir. Námsmat fer fram í formi símats alla önnina í formi prófa, fjölbreyttra verkefna og kynninga. Unnið eftir hæfniviðmiðum aðalnámskrár grunnskóla. Hæfni nemenda skráð jafnt yfir önnina í mentor. Vitnisburður fer heim í lok annar með bókstaf fyrir hvert fag.

Haustfundir í upphafi skólaárs.

  • Farið er yfir áherslur vetrarins með foreldrum.

Læsi

  • Staðlað lesfimipróf frá MMS lagt fyrir í september, janúar og maí. 
  • Staðlað lesskilningspróf frá MMS (Orðarún) lagt fyrir í október og mars í 7. og 8. bekk.
  • Stafsetningarskimun lögð fyrir í september – október í 1. bekk. 
  • GRP14h-stafsetningarpróf lagt fyrir í janúar í 9. bekk.
  • LOGOS lestrargreiningarpróf lagt fyrir nemendur miðað við niðurstöður úr GRP14h og lesfimiprófum, janúar - maí. 10. bekkur.

Stærðfræði 

  • Greinandi könnun á skilningi á tugabrotum lagt fyrir nemendur 8. bekkjar í október.

Foreldraviðtöl: 

  • Eru í lok september og lok janúar. Nemendur stjórna samtalinu við sína foreldra með aðstoð kennara. Nemendur ræða námið sitt og setja sér markmið, samskipti og hegðun. Fyrir viðtöl hafa nemendur undirbúið sig með kennara. 

Próf og önnur verkefni 

  • Símat alla önnina, metin eru ýmis bóklegverkefni, sköpunarverkefni, framsöguverkefni, ritgerðir og próf. 
  • Einkunnargjöf á unglingastigi er gefin í bókstöfum í öllum fögum.  

Íþróttir og sund

  • Einkunnir eru gefnar í bókstöfum
  • Nemendur taka ýmis sundpróf  

Google classroom og mentor

  • Nemendur og kennarar nota google umhverfið til að leggja verkefni fyrir og gefa endurgjöf á verkefni nemenda og setja inn einkunn í formi bókstafar. Þar er einnig tækifæri fyrir nemendur að senda kennurum skilaboð sem kennarar geta brugðist við.
  • Mentor kennarar setja inn hæfni nemenda í mentor. Þar geta foreldrar fylgst með hvaða hæfni barnið þeirra hefur náð.

Nemendur 10. bekkjar útskrifast úr skóla að vori miðað við matsviðmið aðalnámskrár. Hæfni nemenda er metin í öllum námsgreinum og einkunn gefin í bókstöfum sem sýnir hvort nemandinn hafi náð viðkomandi hæfniþætti eða ekki. Nánari upplýsingar um námsmat við lok grunnskóla má nálgast hér.

Matsviðmið bókstafa

A
Framúrskarandi hæfni þar sem nemandi sýnir betri árangur, úrvinnslu og hugsun en vænta má hjá nemanda í viðkomandi árgangi.
B+ 
Hæfniviðmiði náð og nemandi er á góðri leið að sýna framúrskarandi árangur. 

Nemandi stenst hæfniviðmið bekkjarins í námsgrein. 
C+ 
Nemandi hefur ekki að fullu náð hæfniviðmiði (B) en lítið vantar upp á að það náist. 
C 
Nemandi stenst ekki fyllilega hæfniviðmið bekkjarins en er kominn nokkuð á leið. 

Nemandi stenst ekki hæfniviðmið bekkjar eða hefur ekki skilað af sér þeirri vinnu sem farið var fram á 
*Stjörnumerkt einkunn er fyrir þá nemendur sem eru með einstaklingsnámskrá og sinna sínu námi eftir henni. 
Ekki er hægt að setja þetta einkunnakerfi í prósentur eða tölur þar sem allt önnur hugsun er á bak við þetta námsmatskerfi en er í tölueinkunnakerfinu. Eitt einstakt verkefni sem gefur nemanda A þýðir ekki endilega að vænta megi þess að nemandi fái A í lokaeinkunn námsgreinar. Mat á námsgreinum er víðtækt og byggir á fjölda verkefna og prófa, þátttöku í umræðum, skapandi úrlausnum og fjölbreyttum verkefnaskilum sem fram fer í námi nemenda dag frá degi.

10. bekkur 
Við útskrift úr 10. bekk þýðir B að nemandi fer á 2. þrep í viðkomandi fagi í framhaldsskóla. Einkunn undir B gæti þýtt að nemandi fari inn á 1. þrep eða í annars konar fornám. 

Uppfært desember 2024