Heimavinnuáætlun
Heimanám í Dalvíkurskóla
Í 5. grein reglugerðar um ábyrgð og skyldur aðila skólasamfélagsins í grunnskólum stendur:
Foreldrar gæta hagsmuna barna sinna og ber að stuðla að því að þau stundi nám sitt. Þeim ber að fylgjast með námsframvindu í samvinnu við þau og kennara. Foreldrar skulu fá tækifæri til að taka þátt í námi barna sinna, sem og í skólastarfinu almennt í samráði við umsjónarkennara og skólastjórnendur.
Markmið heimanáms
- Að heimanám sé samstarfsverkefni heimilis og skóla.
- Að efla lestrarfærni og lesskilning nemenda.
- Að efla nemandann sem námsmann, dýpka skilning hans og auka hæfni.
- Að hluti heimanáms tengist áhugamálum nemanda.
- Að foreldrar fái tækifæri til að sjá verkefni sem barnið sitt vinnur að.
Foreldrar geta óskað eftir auknu heimanámi í samráði við barnið sitt og umsjónakennara.
Með lestri og lestrartengdum verkefnum er átt við yndislestur og lestur námsefnis ásamt verkefnum því tengdu.
1.-4. bekkur
Lestur er heimanám 5 daga vikunnar. Heimanám fer heim einu sinni til tvisvar í mánuði og hafa nemendur viku til að leysa það. Verkefni sem fara heim eru tengd því námi sem barnið er að sinna í skólanum s.s. stærðfræði, skrift og lestrartengd verkefni. Auk þess getur verið hluti af heimanámi að nemandi vinni að því að ná námsmarkmiðum sínum. 5. og 6. bekkur Lestur er heimanám 5 daga vikunnar. Heimanám fer heim tvisvar sinnum í mánuði og hafa nemendur viku til að leysa það. Verkefni sem fara heim eru tengd því námi sem barnið er að sinna í skólanum s.s. stærðfræði, skrift og lestrartengd verkefni. Auk þess getur verið hluti af heimanámi að nemandi vinni að því að ná námsmarkmiðum sínum.
7.-10. bekkur
Lestur og lestrartengd verkefni og að minnsta kosti eitt stærra verkefni á önn (ritgerðir og sköpununarverkefni). Auk þess er hluti af heimanámi að nemandi vinni að því að ná námsmarkmiðum sínum. Ítarefni og annað heimanám í samráði við nemendur, foreldra og kennara. Á stundaskrá nemenda í 7. – 10. bekk eru tímar vikulega, þar sem nemendur hafa tækifæri á að vinna í verkefnum og heimanámi.
Uppfært september 2025