Fara í efni

Beiðni um leyfi úr skóla

Reglur um leyfi nemenda

Samkvæmt 3. gr. laga um grunnskóla nr. 91/2008 er börnum skylt að sækja grunnskóla. Foreldrar bera ábyrgð á því að skólaskyldu sé fylgt. Þeim er heimilt að sækja um tímabundna undanþágu frá skólaskyldu hjá skólastjóra, en bera jafnframt ábyrgð á því að nemandi vinni upp það námsefni sem hann kann að missa af á meðan leyfi stendur.

Umsjónarkennarar eða ritari skólans geta gefið leyfi í 1-2 daga en ef sótt er um leyfi í lengri tíma þarf skólastjóri að samþykkja leyfið. Þegar nemandi er í leyfi í lengri tíma þurfa foreldrar að setja sig í samband við umsjónarkennara og fá upplýsingar um námsefni sem vinna skal á meðan leyfi stendur.

Þegar leyfi er veitt eru viðmið skólans um ófullnægjandi skólasókn höfð til hliðsjónar, sjá hér.

Hægt er að sækja um öll leyfi fyrir nemendur í Mentorappinu, sjá leiðbeiningar hér.