Verið hjartanlega velkomin á bókakynningu og upplestur í Bergi menningarhúsi á Dalvík laugardaginn 24. október kl. 13:00, þar sem Þorbjörg Sandra Bakke kynnir nýjustu barnabók sína, Sóley og Fífa finna dreka.
Þorbjörg bæði skrifar sögurnar og myndskreytir og er þetta önnur bókin um vinkonurnar Sóleyju og Fífu, sem halda áfram að rækta vináttuna og efla hugrekkið í nýju ævintýri. Á leiðinni kynnast þær fleiri fuglum, blómum og öðrum spennandi fyrirbærum í náttúrunni. Jafnvel drekum! 🐉
🌿 Sögurnar eiga sterkar rætur í Svarfaðardal, en Þorbjörg sækir innblástur í æskuminningar sínar úr sveitinni og náttúruna þar í kring. Hún bjó á Dalvík á árunum 1990–1995 og því er sérstaklega ánægjulegt að kynna bókina á þessum kunnuglegu slóðum.
🎶 Í boði verður upplestur, lifandi tónlist og léttar veitingar fyrir börn og fullorðna.
📖 Hægt er að lesa meira um bókina og jafnvel forpanta hana á krota.is.
Hlökkum til að sjá ykkur! 💛
