Allar húsbyggingar, viðbyggingar, bifreiðageymslur og skýli, breytingar á byggingum og burðarhlutum þeirra, innanhúss sem utan, s.s. breytingar á gluggum, klæðningu húsa að utan, sólstofur, svalaskýli, garðhús, heita potta, sundlaugar, uppsetning á gervihnattadiskum og gerð bifreiðastæða eru m.a. leyfisskyldar framkvæmdir. Meginreglan er því sú, að óheimilt er að hefja framkvæmdir nema sveitarstjórn hafi gefið út leyfi fyrir þeim. Sjá byggingarreglugerð 11. og 12. gr.
Byggingamál
Spurt og svarað um byggingarmál
Hér er leitast við að svara algengustu spurningum varðandi byggingarmál en starfsfólk veitir líka fúslega faglegar ráðleggingar, bæði í viðtals- og símatímum sem hægt er að bóka með því að nota hlekkina hér að neðan:
Spurt og svarað:
Grenndarkynning felst í því að nágrönnum, sem hagsmuna eiga að gæta, er kynnt málið og gefinn kostur á að tjá sig innan ákveðins frests sem skal vera a.m.k. fjórar vikur. Að þeim fresti liðnum tekur skipulagsráð málið til afgreiðslu. Skipulagsráð tekur ákvörðun um hvort erindi/mál eru send í grenndarkynningu þegar um er að ræða minniháttar breytingar á deiliskipulagi eða þegar um er að ræða viðbyggingar þar sem deiliskipulag er ekki til.
Ef um útlitsbreytingu er að ræða þarf að fá löggiltan hönnuð til að teikna upp breytt útlit hússins. Sækja þarf um leyfi til byggingarfulltrúa í gegnum Þjónustugátt Dalvíkurbyggðar Bent skal á að oft er gott að leggja inn fyrirspurn hjá byggingarfulltrúa um hvort leyfi fáist fyrir breytingum á húsinu áður en farið er út í kostnað við hönnun.
Á deiliskipulagi sést hvort byggja megi bílskúr eða aðrar viðbyggingar. Byggingar þurfa að vera innan byggingarreits. Deiliskipulag er hægt að nálgast á kortasjá Dalvíkurbyggðar.
Ef skipulag er ekki til staðar metur skipulagsráð umsóknina og ef hún telur erindið koma til greina sendir ráðið það í grenndarkynningu.
Bent skal á að oft er gott að senda inn fyrirspurn til skipulagsfulltrúa í gegnum þjónustugáttina um hvort leyfi fáist fyrir hugsanlegum bílskúr eða viðbyggingu, áður en farið er út í kostnað við hönnun.
Sækja þarf um byggingarleyfi til byggingarfulltrúa í gegnum þjónustugátt Dalvíkurbyggðar.
Einnig þarf byggingarstjóri að undirrita yfirlýsingu um ábyrgð sína á byggingunni og meistarar þurfa að skila inn ábyrgðaryfirlýsingu sinni á byggingunni.
Greiða þarf gatnagerðargjald og byggingarleyfisgjald af bílskúr og öðrum viðbyggingum.
Leita skal til löggiltra hönnuða til að láta hanna og teikna fyrirhugaða byggingu.
Hægt er að nálgast teikningar á pdf eða tiff formi í kortasjá Dalvíkurbyggðar. Ljósrit af lóðasamningum fást á skipulagssviði.
Spurt og svarað um byggingarleyfi.
Húseigendur og lóðarhafar eða umboðsmenn þeirra.
Umsókn er send inn til byggingarfulltrúa í gegnum þjónustugátt Dalvíkurbyggðar.
- að umsækjandi sé lóðarhafi, húseigandi eða umboðsmaður hans.
- að hönnuðir hafi löggildingu, gæðakerfi og fullnægjandi starfsábyrgðartryggingu.
- að umsóknareyðublað sé rétt útfyllt.
- að gátlistar séu rétt útfylltir.
- að öll nauðsynleg fylgiskjöl fylgi.
- að öll önnur gögn uppfylli ákvæði byggingarreglugerðar eftir því sem við á.
Ef umsókn uppfyllir ekki ofangreind skilyrði er ekki tekið við henni. Umsóknin er yfirfarin af starfsmönnum byggingarfulltrúa og gengið úr skugga um að hún uppfylli ákvæði mannvirkjalaga, byggingarreglugerðar, skipulagsskilmála og annarra laga og reglna er málið varða. Einnig gæti verið þörf á að leita umsagnar og/eða samþykkis Slökkviliðs Dalvíkur, framkvæmdaráðs Dalvíkurbyggðar, HMS og Umhverfisstofnunar eftir því sem við á.
Byggingarfulltrúi afgreiðir allar umsóknir um byggingarleyfi. Ef sótt er um byggingarleyfi í þegar byggðu hverfi og deiliskipulag liggur ekki fyrir eða ef um er að ræða óverulega breytingu á deiliskipulagi er málið lagt fyrir skipulagsráð sem ákveður hvort grenndarkynna eigi málið. Grenndarkynning tekur minnst 4 vikur. Eftir yfirferð er umsókn lögð fyrir afgreiðslufund byggingarfulltrúa þar sem lagt er lokamat á hana. Að fundi loknum fá allir umsækjendur tilkynningu um afgreiðslu málsins.
Þeir sem hafa skilað inn ófullnægjandi umsóknum fá rökstuðning fyrir því hvers vegna umsókn var ekki samþykkt og gefst þá kostur á að lagfæra hana. Umsókn sem hefur verið lagfærð fær sömu meðferð og ný umsókn og henni þarf að skila inn í síðasta lagi fyrir hádegi á þriðjudegi fyrir fund. Því líður hið minnsta vika á milli
þess sem umsókn er tekin til umfjöllunar. Greiða þarf gjald vegna hverrar endurskoðunar aðaluppdrátta. Ef umsókn er synjað getur umsækjandi kært niðurstöðuna til Úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála. Byggingarfulltrúi leiðbeinir umsækjanda um kæruleið og kærufrest. Úrskurður nefndarinnar er fullnaðarúrskurður á
stjórnsýslustigi.
Þegar byggingarfulltrúi hefur samþykkt byggingaráform gefur hann út formlegt byggingarleyfi að uppfylltum skilyrðum og geta þá framkvæmdir hafist.
Skilyrðin eru þessi:
- Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld, s.s. gatnagerðar-, byggingar-, útmælingar-, afgreiðslu- og þjónustugjöld, hafi verið greidd samkvæmt gjaldskrám og reglum eða samið um greiðslu þeirra.
- Byggingarstjóri með gæðakerfi hafi undirritað yfirlýsingu um ábyrgð sína á framkvæmdinni og skilað inn staðfestingu á ábyrgðartryggingu.
- Iðnmeistarar með gæðakerfi hafi staðfest ábyrgð sína á viðkomandi verkþáttum.
- Tilskildum séruppdráttum hafi verið skilað til embættisins og þeir áritaðir.
- Hönnunarstjóri hefur lagt fram yfirlit um innra eftirlit og ábyrgðarsvið einstakra hönnuða
Með fyrirspurnum getur húseigandi eða lóðarhafi kannað hvort leyfi muni fást fyrir tiltekinni framkvæmd, án þess að leggja fram fullnaðaruppdrætti. Sé svar byggingaryfirvalda jákvætt getur umsækjandi fylgt málinu eftir með byggingarleyfisumsókn.
Embætti byggingarfulltrúa er starfrækt samkvæmt mannvirkjalögum 160/2010 og reglugerðum þeim tengdum. Óheimilt er samkvæmt mannvirkjalögum að grafa grunn, reisa hús, rífa hús, breyta því, burðarvirki þess, formi, svipmóti eða notkun þess eða gera önnur mannvirki nema að fengnu leyfi viðkomandi byggingarfulltrúa sbr. þó gr. 2.3.5 í byggingarreglugerð. Framkvæmdir skulu vera í samræmi við staðfest aðalskipulag og samþykkt deiliskipulag. Samþykkt byggingarfulltrúa felur í sér samþykkt aðaluppdrátta og byggingaráforma eða samþykkt á breyttri notkun húss.
Auk útgáfu byggingarleyfa annast embættið yfirferð og samþykkt séruppdrátta, úttektir, skráningu byggingarstjóra og iðnmeistara á verk, fasteignaskráningu, landupplýsingakerfi Akureyrar LUKA, yfirferð eignaskiptayfirlýsinga, útgáfu lóðarsamninga og gefur umsagnir vegna starfs-, gisti- og veitingaleyfa. Þá varðveitir embætti bygginarfulltrúa uppdrætti af flest öllum húsum í Dalvíkurbyggð og geta allir fengið ljósrit af þeim eða nálgast þá rafrænt í kortasjá.