Fjölskylduráð
2. fundur
12. maí 2026
kl.
08:15
-
10:30
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Sigríður Jódís Gunnarsdóttir
formaður
Gunnar Kristinn Guðmundsson
varaformaður
Bessi Ragúels Víðisson
aðalmaður
Monika Margrét Stefánsdóttir
aðalmaður
Snævar Örn Ólafsson
aðalmaður
Starfsmenn
Gísli Bjarnason
sviðsstjóri
Eyrún Rafnsdóttir
sviðsstjóri
Fundargerð ritaði:
Gísli Bjarnason
Sviðsstjóri fræðslu - og menningarsviðs.
Dagskrá
1.
Endurmenntunarsjóður Grunnskóla
Gísli Bjarnason, sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs, upplýsti um samþykkta styrkumsókn í Endurmenntunarsjóð Grunnskóla.
Lagt fram til kynningar
3.
Íslennsku Menntaverðlaunin 2026
Tekið fyrir erindi frá Samband Íslenskra Sveitarfélaga dag. 17.04.2026 sem er kynning á tilnefningum til Íslennsku Mentaverðlaunanna 2026.
Lagt fram til kynningar.
4.
Íslenska æskulýðsrannsóknin. Niðurstöður grunnskólakönnunar.
Gísli Bjarnason, sviðsstjóri fræðslu - og menningarsviðs og Eyrún Rafnsdóttir, sviðsstjóri félagsmálasviðs fara yfir helstu niðurstöður úr Íslensku æskulýðsrannsókninni.
Lagt fram til kynningar. Mikilvægt að rýna þessar upplýsingar og reyna að bregðast við með skólunum.
5.
Endurnýjun á samningi
Eyrún Rafnsdóttir,sviðsstjóri félagsmálasviðs og Gísli Bjarnason, sviðsstjóri fræðslu - og menningarsviðs fara yfir stöðuna á vinnu við endurskoðun á samningi við Heilsu - og sálfræðiþjónustuna slf.
Fjölskylduráð samþykkir með fimm atkvæðum að endurnýja samning við Heilsu og sálfræðiþjónustu Slf. í eitt ár.
6.
Fundargerðir Farsældaráðs 2026
Fundagerðir Farsældarráðs lagðar fram til kynningar.
Lagt fram til kynningar.
7.
Trúnaðarmál
Trúnaðarmál - 202605034Bókað í trúnaðarmálabók
8.
Leiðbeiningar um sérstakan húsnæðisstuðning
Erindi barst frá Félags- og húsnæðismálaráðuneytinu dags. 20.03.2026. Ráðuneytið hefur uppfært leiðbeiningar um sérstakan húsnæðisstuðning og gert breytingar á viðmiðunarfjárhæðum vegna mats á áhrifum tekna um 6,5% og mats á áhrifum eigna. Eignamörk húsnæðisbóta hafa einnig verið hækkuð. Umræddar breytingar hafa verið gerðar í samráði við Samband íslenskra sveitarfélaga
Lagt fram til kynningar
9.
Sumarbúðir fyrir fötluð börn
Tekin er fyrir rafpóstur dags. 27.04.2026 frá Vinakoti. Þar hefur verið rekin hvíldardvöl fyrir fötluð börn og ungmenni um áratugaskeið. Í sumar verður Vinakot með sumarbúðir fyrir fötluð barn þar sem markmiðið er að skapa vettvang fatlaðra barna í fjölbreyttum tómstundum. Hægt er að sækja um langar helgar eða vikudvalir.
Lagt fram til kynningar
10.
Reglugerð um fjölþættan vanda barna
Tekið fyrir tölvupóstur dags.28.04 frá Sambandi Íslenskra sveitarfélaga þar sem áhyggjum er líst yfir að með reglugerðinni væri verið að þrengja skilgreiningar á þeim hópi barna sem eru skilgreind með fjölþættan vanda. Reglugerðin er samráðsgátt stjórnvalda.Mennta- og barnamálaráðuneytið leggur til að sett verði ný reglugerð um málsmeðferð vegna vistunar barna með fjölþættar stuðningsþarfir í sérhæfð vistunarúrræði á vegum ríkisins, á grundvelli 3. mgr. 21. gr. laga um fatlað fólk með fjölþættar stuðningsþarfir, nr. 38/2018, og 3. mgr. 7. gr., sbr.4. mgr. 79. og 5. mgr. 80. gr. barnaverndarlaga, nr. 80/2002.Drögin fjalla m.a. um skilgreiningu barna með fjölþættar stuðningsþarfir, upphaf og vinnslu mála hjá sérfræðingateymi, ákvörðun um vistun barna í sérhæft úrræði á vegum ríkisins og endurmat á þörf fyrir vistun í slík úrræði.Markmið reglugerðarinnar er að skýra nánar hvaða börn teljast hafa fjölþættar stuðningsþarfir og í þörf fyrir vistun utan heimilis í sérhæfð vistunarúrræði á vegum ríkisins. Þá er jafnframt kveðið á um skýra málsmeðferð vegna slíkra ákvarðana, m.a. hlutverk sérfræðingateymis, sem metur þörf fyrir vistun. Reglugerðin felur í sér útfærslu á samkomulagi milli ríkis og sveitarfélaga þar sem ríkið tekur að sér aukna ábyrgð á framkvæmd og fjármögnun sérhæfðrar þjónustu vegna barna sem þarfnast búsetu utan heimils og hafa verið metin í þörf fyrir þjónustu á þriðja stigi.Reglugerðin tekur til barna sem glíma við flókinn og samsettan vanda sem krefst samsettrar þjónustu. Gert er ráð fyrir að vistun í sérhæfðu vistunarúrræði sé aðeins heimil þegar önnur úrræði innan heimilis og í nærumhverfi barnsins hafa verið fullreynd.
Lagt fram til kynningar.
11.
Landsmót 50 , framkvæmt af UMSE
Tekið fyrir erindi frá UMFÍ 50 dags. 01. mars.
Fjölskylduráð samþykkir með fimm atkvæðum að veita 100.000 kr. fjármagn sem er til í Heilsueflandi samfélagi. Golfið verður haldið á golfvelli Dalvíkurbyggðar.
12.
Styrkbeiðni frá Ferðafélagi Svarfdæla
Tekið fyrir erindi frá Ferðafélagi svarfdæla.
Fjölskylduráð samþykkir/hafna með fimm atkvæðum að veita 430.000 kr. styrk úr sjóði Heisueflandi samfélags.
13.
Hvatagreiðslur Dalvíkurbyggðar
Jón Stefán Jónsson, íþróttafulltrúa Dalvíkurbyggðar, fer yfir reglur varðandi Hvatagreiðslur.
Erindi frestað til næsta fundar ráðsins.
14.
Beiðni um styrk til kaupa á loftdýnu
Tekið fyrir erindi fr fimleikadeild UMFS. Deildin óskar eftir styrk í aðstöðu deildarinnar.
Fjölskylduráð samþykkir með fimm atkvæðum að fresta til næsta fundar. Íþróttafulltrúa falið að afla frekari upplýsinga.
15.
Gjaldskrárbreytingar íþróttamiðstöðvar 2026
Jón Stefán Jónsson,íþróttafulltrúi Dalvíkurbyggðar fer yfir þær breytingar á gjaldskrá íþróttamiðstöðvar.
Fjölskylduráð samþykkir með fimm atkvæðum endurskoðaða gjaldskrá íþróttamiðstöðvar 2026.
16.
Samningur um samstarf sundlauga Dalvíkurbyggðar og Fjallabyggðar
Jón Stefán Jónsson, íþróttafulltrúi Dalvíkurbyggðar fer yfir samning og næstu skref rædd.
Fjölskylduráð samþykkir með fimm atkvæðum að rifta samningi við Fjallabyggð þar sem að mikill mismunur er á gjaldskrá milli sveitarfélaga. Vilji er til að endurkoða samninginn síðar ef forsendur breytast.
17.
Umsókn um styrk vegna yngriflokka kvenna
Tekin fyrir umsókn frá Barna - og Unglingaráði dags. 08. maí þar sem þau óska eftir 300.000 kr. styrk til að efla knattpyrnuiðkun stúlkna í sjöunda flokki UMFS.
Fjölskylduráð samþykkir með fimm atkvæðum að styrkja Barna - og unglingaráð um 300.000 kr. Íþróttafulltrúa falið að kanna svigrúm í fjárhagsáætlun.