- Þjónusta
- Fjölskyldan
- Menntun
- Íþróttir og tómstundarstarf
- Endurvinnsla
- Umhverfi
- Skipulags- og byggingarmál
- Dýrahald
- Veitur og hafnir
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
- Þátttaka íbúa
- English
- Opnunartímar og símanúmer
UMFS býður upp á knattspyrnuæfingar allt árið um kring á Dalvík. Æft er úti á íþróttasvæðinu fyrir neðan íþróttamiðstöðina á sumrin og fram á haustið en inni í íþróttamiðstöðinni á veturnar og úti á sparkvellinum við skólann. Boðið er upp á æfingar fyrir 8. - 3. flokk karla og kvenna. Á facebook síðu barna- og unglingaráðs knattspyrnudeildar UMFS er að finna ýmsar nytsamlegar upplýsingar um knattspyrnuæfingar.
UMÞS býður upp á knattspyrnuæfingar við Rimar í Svarfaðardal á sumrin, tvö kvöld í viku.
UMFR býður upp á knattspyrnuæfingar í Árskógi á Árskógsströnd á sumrin.
Golfklúbburinn Hamar býður upp á golfæfingar allt árið um kring á Dalvík og á Arnarholtsvelli. Á Dalvík er boðið upp á golfæfingar í vel búinni inniaðstöðu yfir vetrartímann. Yfir sumartímann eru golfæfinga haldnar á Arnarholtsvelli í Svarfaðardal. Allar nánari upplýsingar er að finna á heimasíðu félagsins www.ghdgolf.net
UMFS býður upp á fimleikaæfingar í íþróttamiðstöðinni yfir vetrartímann. Æfingarnar eru ætlaðar börnum á síðasta ári í leikskóla og upp alla grunnskólagönguna. Netfang hjá fimleikafélaginu er fimdalvik@gmail.com
Skíðafélag Dalvíkur heldur úti skíðaæfingum í Böggvisstaðafjalli yfir vetrartímann. Allar nánari upplýsingar er að finna á heimasíðu félagsins www.skidalvik.is
Sundfélagið Rán heldur úti sundæfingum í sundlauginni í íþróttamiðstöðinni. Allar nánari upplýsingar gefur Elín Björk Unnarsdóttir í síma 861 9631.
Hestamannafélagið Hringur býður upp á ýmis námskeið fyrir börn, unglinga og fullorðna í aðstöðu sinni Hringsholti í Svarfaðardal. Allar nánari upplýsingar er að finna á heimasíðu félagsins www.hringurdalvik.net