- Þjónusta
- Fjölskyldan
- Menntun
- Íþróttir og tómstundarstarf
- Endurvinnsla
- Umhverfi
- Skipulags- og byggingarmál
- Dýrahald
- Veitur og hafnir
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
Dalvíkurbyggð tekur á móti rafrænum reikningum og hefur gert um nokkurt skeið. Reynslan af því hefur verið góð og hefur það sparað bæði tíma og pappír. Dalvíkurbyggð er í samstarfi við fyrirtækið Inexchange um rafræna reikningagerð en helsti ávinningur hennar er pappírs- og tímasparnaður. Sendandinn sparar sér kostnað við hefðbundna pappírsreikninga á meðan móttakandinn sparar sér kostnað við skönnun, bókun og lyklun og minnkar líkurnar á misfærslum. Dalvíkurbyggð vill því hvetja þá birgja sína sem ekki stunda rafræna reikningagerð að kynna sér þann möguleika.
Vefur fyrir birgja Dalvíkurbyggðar
Nánari upplýsingar veitir Margrét Ásgeirsdóttir, ritari, í síma 460 4900 og á netfanginu margret@dalvikurbyggd.is