Salka kvennakór

Salka kvennakór

Salka kvennakór fagnar sínu 10. starfsári í ár. 

Af því tilefni ætlar kórinn að koma saman og fagna þessum merku tímamótum. 

Dagskráin verður að venju fjölbreytt þar sem ungir tónlistarmenn stíga á stokk og kórkonur koma fram með fjölbreyttan samsöng. Aldrei að vita nema gamlir kórfélagar komi eitthvað við sögu. Miðaverð 2500 krónur fyrir fullorðna og 1000 krónur fyrir grunnskólabörn. 

Miðasala við innganginn og engin posi á staðnum.