Miðvikudagsganga - Sjávarbakkarnir milli Sauðaness og Karlsár - 1 skór

Ferðafélag Svarfdæla kynnir miðvikudagsgöngur í samstarfi við Heilsueflandi Dalvíkurbyggð.

Fyrsta miðvikudagsganga sumarsins. Brottför kl. 16.30 frá Dalvíkurkirkju. Safnast saman í bíla og ekið út að Sauðanesi. Gengið frá gömlu ruslahaugunum út í Ytri-Vík. Þaðan eru bakkarnir gengnir suður að Karlsánni og upp með henni að bænum Karlsá. Sérstaklega verður hugað að fuglalífi á þessari leið. 

Ganga - 1 skór. 5 km., 2-3 klst.