Klassík í Bergi - Söngvar Jórunnar Viðar

Klassík í Bergi - Söngvar Jórunnar Viðar

Tónleikaröðin „Klassík í Bergi“ í samstarfi við Tónaland (Landsbyggðartónleikar).

Erla Dóra Vogler mezzosópran og Eva Þyri Hilmarsdóttir píanóleikari koma fram í Klassík í Bergi laugardaginn 9. nóvember kl. 16.

Erla Dóra og Eva Þyri héldu upp á aldarafmæli Jórunnar Viðar árið 2018 með tónleikahaldi og útgáfu geisladisksins „Jórunn Viðar - Söngvar“.
Á tónleikunum - sem og geisladiskinum - má m.a. heyra lög eftir Jórunni sem sjaldan eða aldrei hafa verið flutt áður í bland við einhver vinsælustu laga hennar, en miðað er að því að kynna þann fjölbreytta arf söngljóða og þjóðlagaútsetninga sem Jórunn lét þjóðinni í té á starfsævi sinni.
Geisladiskurinn hlaut tilnefningu til Íslensku tónlistarverðlaunanna sem plata ársins 2018 í flokknum klassísk og samtímatónlist.
Erla Dóra og Eva Þyri hafa unnið saman um nokkurra ára skeið og hafa nú flutt verk Jórunnar á fjölmörgum tónleikum innan lands sem utan.

Miðasala við inngang
Aðgangseyrir er kr. 3.500
Vinsamlegast athugið að ekki er tekið við greiðslukortum


Hægt verður að kaupa diskinn að tónleikum loknum.